Falleg, vel skipulögð einbýlishús með þremur svefnherbergjum og þremur baðherbergjum á tveimur hæðum í Vistabella. Möguleiki að hafa einkasundlaug.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Rúmgott eldhús opið inní stofu stofu og borðstofu. Eitt svefnherbergi og baðherbergi.
Efri hæð:
Á efri hæðinni eru tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Útgengt út á svalir frá báðum svefnherbergjunum.
Rúmgóðar lóðir þar sem hægt er að hafa einkasundlaug en hún fylgir ekki með í verðinu,
Þetta svæði er algjör perla, útivistarparadís í fallegu og rólegu umhverfi með öryggisgæslu 24/7, svæðið er afgirt og það kemst enginn inn á svæðið nema að hafa þangað erindi.
Vistabella golfvöllurinn er mjög skemmtilegur og vinsæll meðal golfara. Nú eru að byrja framkvæmdir á glæsilegu golfhúsi og íþróttasvæði í kringum golfvöllinn.
*Innifalið í verði eru 40 golfhringir á Vistabella golfvellinum.
Best að panta teikningar, verðlista og allar upplýsingar hér.
Erum einnig með til sölu glæsileg einbýli á einni hæð skoða hér.
Einnig eru til sölu sérhæðir frá sama verktaka þar sem hægt er að velja efri hæð með þaksvölum eða neðri hæðir með garði, skoða hæðirnar hér
Smelltu hér
til að skoða yfir 250 eignir á Costa blanca suður svæðinu á verði frá 125.000 til 200.000 evrur.
Möguleiki á 70% láni.
Skoða allt um kaupferlið hér.
Í Leitarvél eru flestar eignir setta undir Orihuela og Orihuela costa.
Þar eru eignir í Villamartin, Punta prima La Zenia, Los dolses og öllum þessum vinsælustu svæðum.